Öskudagur
Það er búið að vera mikið fjör í skólanum í dag, öskudag. Nemendur og starfsfólk mættu í grímubúningu og mátti sjá allskonar undarlegar persónur og furðuverur á ferð. Dagurinn hófst á æfingum fyrir samkomuna í íþróttahúsinu en þar tóku krakkarnir lagið auk þess sem þeir tóku þátt í hæfileikakeppni.
Á yngsta stigi sýndu krakkarnir dans, bæði frumsaminn freestyle og kúrekadans. Einn hópur flutti lag og spilaði einn nemandi undir á ukulele.



