Framkvæmdastjóri Microsoft spjallaði við 6. og 7. bekk og foreldra þeirra
Mánudaginn 22. febrúar kom Halldór Jörgensson framkvæmdastjóri Microsoft á Íslandi í heimsókn til Hafnar. Markmið hans með ferðinni var að fjalla um nýsköpun á sviði upplýsingatækni og almenna byggðaþróun og viðskiptatækifæri við heimamenn. Einnig hitti hann nemendur í 6. og 7. bekk og fjallaði um netöryggi barna, unglinga og foreldra. Fundurinn með 6. og 7. bekk var í Nýheimum og var foreldrum boðið að vera með. Þar fjallaði Halldór almennt um netöryggi, og sagði m.a. frá því hvernig hægt væri að efla það á ýmsan hátt. Halldór kom færandi hendi í heimsóknina og gaf skólanum prentara en einnig kom hann með fjórarar tegundir af bæklingum sem hann dreifði til nemenda og foreldra.



