Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Gjof-fra-Kvenfelaginu-i-Nesjum-23.-mai-015
Gjof-fra-Kvenfelaginu-i-Nesjum-23.-mai-015
Tuglhoppari (moonhopper) heitir þetta leikfang
Mynd 1 af 2
1 2

Gjöf til skólans frá kvenfélaginu Vöku í Nesjum

23.04.2010

Kvenfélagið Vaka hefur gefið skólanum útileikföng fyrir allt að 100.000 kr.  Á hreinsunardeginum í dag vígðum við dótið en það samanstendur af allskyns útileikföngum sem öll eiga það þó sameiginlegt að stuðla að aukinni hreyfingu barna.

Hreyfing er mikilvæg fyrir öll börn og því er lögð áhersla á að hafa skólalóðirnar þannig útbúnar að þær hvetji til hreyfingar.  En það þarf líka ýmis áhöld s.s. bolta, sippubönd, snú - snúbönd og fleira.  Gjöfin frá kvenfélaginu Vöku var því afar kærkomin nú undir vorið þegar flest börn og unglingar vilja vera meira úti við og hreyfa sig. 

Nemendur og starfsmenn þakka Nesjakonum kærlega fyrir góða gjöf.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica