Námsferði í Öræfin hjá 6. og 7. bekk
Á dögunum fóru nemendur í 6. og 7. bekk í námsferði í Öræfin þar sem áhersla var lögð á að nemendur fræddust um umhverfið og lærðu að gera ýmiskonar mælingar og tilraunir. Hér á eftir fer frásögn þriggja nemenda úr ferðinni.
Mánudaginn 10. maí fórum við í 6. og 7. bekk í Öræfaferð. Á fyrsta deginum fórum við að labba út í Bæjarstaðaskóg í Þjóðgarðinum. Á leiðinni sáum við margt skemmtilegt t.d. Hundafossa, Svartafoss o.fl. Þegar komið var að Bæjarstaðaskóg fengum við að busla í 30 – 60 mín. Síðan þegar búið var að busla var haldið af stað í rútuna. Við löbbuðum samtals í 7 tíma eða frá 11:00 – 18:00. Þar lærðum við margt bæði skemmtilegt og fróðlegt. Þegar komið var í Hofgarð gerðum við okkur tilbúin fyrir nóttina. Þegar það var búið var farið út. Sumir fóru í fótbolta en aðrir fóru í Kubb. Um kvöldið var svo kvöldvaka ( með kvöldhressingu ) þar sem Kristín G. Gestsdóttir stjórnaði. Um 22:30 fórum við stelpurnar uppí herbergin tilbúnar að fara að sofa. Strákarnir sváfu í salnum. Fyrir svefninn var lesin saga fyrir alla. Á öðrum deginum var vaknað um morguninn klukkan 7. Þá var gengið frá dótinu sínu og farið svo beint að borða morgunmat. Þegar allir voru búnir að skila dótinu og borða morgunmat var farið aftur útí Þjóðgarðinn og voru þar nokkrar stöðvar t.d. Vatnamælingar, trémælingar, skordýrafræði, tálgað, hreinsa til o.m.fl. Þegar þetta var búið var farið að busla í ÍSKÖLDUM hyl! Þegar það var búið eða um hálf 4 leitið var farið heim til Hafnar. Okkur fannst þessi ferð mjög skemmtileg.
Kær kveðja Hafdís Lára, Berglind og Eyjalín Harpa í 6. bekk



