Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Nýsköpunarkeppni 2010 - keppendur úr Grunnskóla Hornafjarðar
Nýsköpunarkeppni 2010 - keppendur úr Grunnskóla Hornafjarðar
Frá Vinstri Arndís Ósk Magnúsdóttir, Guðrún Kristín Stefánsdóttir, Una Guðjónsdóttir og Jóel Ingason

Nýsköpunarkeppni grunnskóla

15.09.2010

 

Dagana 16. - 19. september fara fram úrslit í Nýsköpunarkeppni grunnskóla.  Fjörutíu og fjórir krakkar komust í úrslit, þar af fjórir úr Grunnskóla Hornafjarðar. Að þessu sinni bárust 1600 hugmyndir allstaðar af landinu svo að Hornfirðingar mega vera sáttir við sinn hlut. Dagana 16. og 17. september vinna krakkarnir að  verkefnum sýnum, búa til líkan og veggspjald til að kynna hugmyndina. Sunnudaginn 19. september verður svo lokahóf í húsi Marels í Garðabæ en þar afhendir forseti Íslands verðlaun fyrir bestu hugmyndirnar.

Krakkarnir sem fara héðan í vinnusmiðjur eru:

Arndís Ósk Magnúsdóttir 5. bekk

Jóel Ingason 6. bekk

Guðrún Kristín Stefánsdóttir 9. bekk

Una Guðjónsdóttir 9. bekk

 

Við óskum þeim góðs gengis

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica