Þorraþræll á næsta leyti
Þá er þorrinn að renna sitt skeið, sól tekin að hækka á lofti og konudagur á sunnudag.
Í skólanum höfum við gert ýmislegt í tilefni þorrans, á bóndadag hoppuðu margir drengir á einum fæti og í annarri buxnaskálminni hringinn í kringum skólann, þorrablót var haldið með hefðbundnu sniði á unglingastiginu, þorramatur borðaður í skólanum og svo að sjálfsögðu sungin þorralög.
Nú er góan framundan, það styttist í öskudag og árshátíð svo það verður nóg um að vera í skólanum líkt og vanalega.


