Skólahreystidagur
Undankeppni fyrir Skólahreysti var haldin síðastliðinn fimmtudag og fengu allir nemendur að prófa þrautirnar. Um morguninn fóru allir yngri bekkirnir í gegnum hraðabraut og strákarnir fengu svo að fara í upphífingar og dýfur en stelpurnar spreyttu sig í armbeygjum og í að hanga. Eftir hádegi var svo komið að keppninni sjálfri. Fjölmargir keppendur mættu til leiks úr 7.-10. bekk. Einungis eru valdir keppendur í lokakeppnina úr 9. og 10. bekk en nemendur úr 7. og 8. bekk fengu samt að spreyta sig. Krakkarnir í 7. og 8. bekk stóðu sig virkilega vel og verður gaman að fylgjast með þeim á næsta og þar næsta ári þegar þau eiga möguleika á að verið valin til að keppa fyrir hönd skólans í Skólahreysti. Í 9. og 10. bekk voru nokkuð margir keppendur sem tóku þátt og stóðu þeir sig mjög vel. Í upphífingum og dýfum stóð Sævar Örn Kristjánsson uppi sem sigurvegari en hann tók 21 upphífingu og 16 dýfur. Í armbeygjum og hangi þá var það María Birkisdóttir sem var hlutskörpust en hún gerði hvorki fleiri né færri en 50 armbeygjur og hékk svo í 1.30 min.
Í hraðaþrautinni var ákveðið að leyfa fimm strákum og fjórum stelpum sem náðu besta tímanum að æfa sig á hverjum degi í skólanum næstu daga og svo verður valinn einn strákur og ein stelpa nokkrum dögum fyrir mót. Stelpurnar eru: Ljósbrá Dögg Ragnarsdóttir, María Selma Haseta, Siggerður Aðalsteinsdóttir og Ásdís Pálsdóttir. Hjá strákunum eru það Þorgeir Dan Þórarinsson, Ragnar Magnús Þorsteinsson, Jónatan Magni Ágústsson, Eiríkur Snær Jóhannesson og Atli Dagur Eyjólfsson.
Í vetur höfum við boðið upp á skólahreystival í skólanum og hefur það gefist mjög vel. Það á eftir að skila sér í betri árangri í keppninni ekki bara í ár heldur komandi ár vegna þess að krakkar úr 7. og 8. bekk hafa líka verið í þessu vali og þau eru orðin mjög efnileg og verður mjög gaman að fylgjast með þeim á komandi árum.



