Tölvukennsluvefur
Sett hefur verið upp ný heimasíða í Upplýsinga- og tæknimennt fyrir eldra stigið eða nemendur Heppuskóla. Farið er inn á þessa heimasíðu hér eða á tenglinum efst til hægri hér til hliðar sem heitir Upplýsinga og tæknimennt. Megin tilgangur síðunnar er að veita upplýsingar um tölvukennsluna í 7. - 10. bekk og hvernig smiðjurnar eru uppsettar. Einnig að sýna verkefni nemenda, hvort sem það er í tímaritahönnun, heimasíðugerð eða annarri tölvusmiðju. Á dagskrá er að gera síðuna gagnvirka þannig að nemendur sæki og skili verkefnum þar inn en slík uppsetning ætti að vera tilbúin á næsta kennsluári.
Inn á hnappnum „Tenglar“ er hægt að finna ýmsa vefi sem hægt er að nýta í tölvukennslu eða einfaldlega æfa sig í fingrasetningu eða taka vélritunarhraðapróf sér til skemmtunar. Einnig er tengill inn á vefinn „Skólaþróun“ en þar er að finna mjög mikið af svo kölluðum frí forritum. Mikil áhersla hefur verið lögð á að kenna á forrit sem hægt er að hala niður án kostnaðar og allir hafa aðgang að.
Tölvu notkun er orðinn svo stór þáttur í okkar daglega lífi, hvort sem það er tengt námi, atvinnu eða áhugamálum. Það er mjög mikilvægt að við bjóðum upp á góða tölvukennslu og nemendur nái sem bestum árangri. Það má segja að skert tölvulæsi í því hraða nútíma þjóðfélagi sem við lifum í sé mjög hamlandi.
Að lokum vil ég minna á að of oft líta nemendur á tölvur sem afþreyingartæki í stað vinnutækis en það er viðhorf sem bæði skóli og heimili þurfa að breyta.
Vilhjálmur



