Stóra upplestrarkeppnin í fullum gangi
Í marsmánuði ár hvert lýkur Stóru upplestrarkeppninni í 7. bekk en hún hefst formlega á degi íslenskrar tungu 16. nóvember. Markmiðið með keppninni er að vekja athygli og áhuga í skólum á vönduðum upplestri og framburði og víst er að margir afburðalesarar hafa komið fram á sjónarsviðið í keppninni.
23. mars verður lokahátíðin í Hafnarkirkju og eru átta nemendur sem komast svo langt að þessu sinni úr Grunnskóla Hornafjarðar. Það eru þau Dagur Snær Guðmundsson, Eyjalín Harpa Eyjólfsdóttir, Hafdís Lára Sigurðardóttir, Inga Kristín Kristjánsdóttir, Ingibjörg Valgeirsdóttir, Ingunn Mist Bergþórsdóttir, Sigrún Birna Steinarsdóttir og Sigrún Salka Hermannsdóttir. Á lokahátíðinni munu þessir nemendur leggja sig alla fram í upplestrinum og hvetjum við alla þá sem áhuga hafa á góðum upplestri að mæta og njóta lestursins.
Á myndinni hér til hliðar eru þeir nemendur sem komast í úrslitakeppnina fyrir utan Eyjalín Höfrpu. Á myndinni eru þeir í keppnisbuxunum því þeir ætla svo sannarlega að gera sitt besta þó auðvitað sé það ekki sigurinn sem skipti öllu máli heldur fyrst og fremst að gera sitt best og gera stundina sem hátíðlegasta.



