Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Frumurnar í Delft 2011
Frumurnar í Delft 2011
Mynd 1 af 4
1 2 3 4

Frumurnar komnar heim

11.06.2011

Lególið Grunnskóla Hornafjarðar, sem tók þátt í opnu Evrópumóti FLL (First Lego league) er komið heim. Keppnin fór fram í Delft í Hollandi og var hin skemmtilegasta. Þarna  voru 67 lið frá 30 þjóðlöndum svo að krakkarnir okkar fengu að kynnast mörgum jafnöldrum sínu víðsvegar að úr heiminum. Frumurnar stóðu sig  vel og voru landi og  þjóð til sóma þó að þær  fengju ekki verðlaun að þessu sinni.
Þeir sem vilja lesa ferðasöguna og skoða myndir er bent á heimasíðu Frumanna, www.frumurnar.blog.is
 
Að lokum vilja Frumurnar þakka öllum þeim fjölmörgu sem studdu þær á einn eða annan hátt og gerðu þetta ævintýri mögulegt.
Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica