Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Nemendráð 2011-2012
Nemendráð 2011-2012
Arnar Freyr, Brandur Ingi, Hafþór, Ragnar Magnús, Anna Birna, Sigríður og Jóel. Á myndina vantar Sigrúnu Sölku
Mynd 4 af 4
1 2 3 4

Kosið í nemendaráð

15.09.2011


Síðustu daga hefur staðið yfir kosning í nemendaráð Heppuskóla og á hver árgangur tvo fulltrúa í ráðinu. Þau sem voru kosin eru: Jóel Ingason og Brandur Ingi Stefánsson úr 7. bekk, Sigrún Salka Hermannsdóttir og Sigríður Gísladóttir úr 8. bekk, Anna Birna Elvarsdóttir og Hafþór Snorrason úr 9. bekk og Arnar Freyr Valgeirsson og Ragnar Magnús Þorsteinsson úr 10. bekk. Þetta er glæsilegur hópur og óskum við þeim velfarnaðar í þeim verkefnum sem framundan eru. Hlutverk nemendaráðs er m.a. að stuðla að góðum skólabrag, vera rödd nemenda í hagsmunamálum þeirra, halda utan um félagslíf nemenda í frímínútum og á skólatíma. Formaður nemendaráðs á sæti í Ungmennaráði á vegum sveitarfélagsins og tveir fulltrúar úr ráðinu sitja í skólaráði. Þetta nýskipaða nemendaráð ætlar að vinna af fullu krafti í allan vetur við að efla anda og félagslíf skólans. Fyrir hönd kennara ætla Sædís Ósk Guðmundsdóttir og Vilhjálmur Magnússon að vinna með ráðinu á þessu skólaári.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica