Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Sudursveit september 2011
Sudursveit september 2011
Döddurnar, sigurliðið í ratleiknum, það má segja að þau hafi rústað okkur hinum.
Mynd 1 af 15
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15

4. og 5. bekkur heimsóttu Suðursveit.

18.09.2011

 

Í síðustu viku fóru 4. og 5. bekkur í námsferð í Suðursveit.  Ferð þessi er farin annað hvert ár og er með þeim hætti að annan daginn er farið á Hala en hinn daginn er gengið inn í Þröng en þá er gengið inn að Breiðamerkurjökli meðfram Fellsfjalli og gist er í Hrollaugsstöðum. Í þetta sinn byrjuðum við á Hala þar sem Þórbergssafnið var skoðað undir leiðsögn Þorbjargar Arnórsdóttur , fiskeldið skoðað hjá Fjölni Torfasyni og farið í ratleik sem settur hefur verið upp bæði með sögulegum fróðleik og fróðleik um örnefni.  Hópnum var skipt í þrjá hópa sem fengu hver sitt nafn en það voru Döddurnar, Heiðar-hópur og hópur Erlendar . Hóparnir fylgdu síðan hver sínum farastjóra á hverja stöð.  Venjulega hefur þessi ferð verið farin að vori og þá notuð til að skoða bæði lömb og fara í fjós en þar sem við fórum að hausti þá nýttum við tímann og fórum í staðinn í berjamó þar sem hið forna býli Fell stóð. Hér fylgja myndir frá fyrri deginum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica