3. bekkur í skemmtilegu verkefni
Undanfarnar vikur hafa nemendur í 3. HS verið að lesa um ættfeður Ísraelsmanna. Eftir að hafa lesið um Abraham og Söru og ferðalag þeirra með ættingja sína og allar sínar eigur, var ráðist í að búa til stóra veggmynd af þessu ferðalagi. Börnin eru mjög dugleg og áhugasöm og stefnir allt í að þetta verði stórt og mikið listaverk hjá þeim



