Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Vikuhatid hja 3 bekk
Vikuhatid hja 3 bekk
Listamennirnir í 3.HS
Mynd 1 af 20
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

Vikuhátíð í boði 3.HS

14.11.2011

Á föstudaginn var sá 3. bekkur um að halda vikuhátíð skólans. Hátíðin var að vanda haldin í Sindrabæ. Krakkarnir buðu upp á fjöruga og fjölbreytta dagskrá með dansi, söng, bröndurum að ógleymdri tískusýningu. Olivia og Kjartan sáu um að kynna dagskrána og gerðu það af stakri prýði. Við upphaf og lok hátíðinnar fengu krakkarnir salinn með sér í fjöldasöng  og er óhætt að segja að allir hafi tekið vel undir. Þess má geta að undanfarna daga og vikur höfum við í skólanum verið að æfa okkur í því að vera áhorfendur því það er líka kúnst eins og að vera listamaður á sviði. Það þarf að æfa að hafa hljóð, klappa, hlæja án þess að vera með læti og sýna listamönnum á sviði almenna kurteisi. Þessar æfingar skiluðu sér vel á hátíðinni og fengu áhorfendur gott hrós fyrir sinn þátt.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica