Ugla í heimsókn í Hafnar- og Heppuskóla
Þeir Esjar og Sigbjörn sem eru í áhöfn Ásgríms Halldórssonar komu í heimsókn í Hafnar-og Heppuskóla með uglu sem þeir sýndu nemendum. Uglan vakt að vonum mikla athygli enda sjaldséðir slíkir gestir.
Uglan hafði sest á skipið hjá þeim er þeir voru á siglingu á milli Vestmannaeyja og Víkur, hún var örmagna af þreytu eftir langt flug en hún hafði greinilega hrakist langa leið undan vindi.


