Lestrarátak og piparkökur í 3 bekk grunnskólans
Í byrjun desember ákváðu börnin í 3. HS að fara í lestrarátak. Átakið stóð í 2 vikur og á þeim tíma lásu börnin 245 bækur! Til að halda upp á þennan stórkostlega árangur var ákveðið að halda jólagleði og bjóða foreldrum að taka þátt í henni. Börnin bökuðu piparkökur og síðan fengu foreldrar að hjálpa til við að skreyta kökurnar og föndra smávegis fyrir jólin. Þetta var ákaflega skemmtileg jólastund og voru samtals 58 manns samankomin í stofu 3. bekkjar.



