Mikið um að vera á öskudegi
Mikið var um að vera í skólanum á öskudag. Sitthvor dagskráin var fyrir yngra og eldra stig en á báðum stigum skemmtu nemendur sér stór vel.
Í 7. - 10. bekk var hefðbundinn skóli fram að hádegi en nemendur og starfsmenn mættu þó í búning og var búningakeppni. Einnig bökuðu stelpur í 9. bekk pönnukökur um morguninn og buðu skólafélögunum í lok dagsins. Eftir hádegi stóð nemendaráð síðan fyrir "Fáránleikum 2012". Þar var keppt í 6 óhefðbundum íþróttagreinum og öttu saman liði fulltrúar úr öllum bekkjum og starfsmenn. Mikill keppnisandi ríkti og skemmtu nemendur og starfsmenn sér vel saman og borðuðu svo pönnukökur í lokin.



