Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Starfskynning-vef
Starfskynning-vef

Starfskynningar í 10. bekk

24.02.2012

23. febrúar byrjuðu nemendur í 10. bekk í starfskynningum og munu þær standa fram undir miðjan maí.

Á þessu tímabili fara 10. bekkingar í hálfan dag einu sinnu í viku í ýmis fyrirtæki og stofnanir og kynna sér þá vinnu sem þar fer fram. Fyrirtæki og stofnanir hafa tekið afar vel í samstarfið við skólann og eiga þessir aðilar vissulega þakkir skilið.

Markmiðiði með starfskynningum er að kynna nemendum hina ýmsu atvinnumöguleika sem í boði eru og ýta undir áhuga þeirra á námi og hverskonar þekkingarleit. Það voru áhugasamir nemendur sem héldu af stað í fyrstu starfskynninguna og öruggt að þessarar vinnu eiga þeir eftir að minnast um ókominn tíma.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica