Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
skidi-vebb8
skidi-vebb8
Mynd 3 af 9
1 2 3 4 5 6 7 8 9

Skíðaferð í Oddskarð

13.03.2012

Þann 7. – 8. mars fórum við krakkarnir í 8. bekk ásamt farastjórunum, Ingibjörgu, Sigurborgu og Sævari í skíðaferð í Oddskarð.

Þegar við komum í Oddskarð var strax byrjað að keppast um hver myndi ná bretti og hver ekki, sem betur fer fengu allir þann skíðabúnað sem þeir vildu fá. Veðrið var mjög gott og var skíðað (brettað) fram eftir degi. Við keyrðum til Norfjarðar og fórum beint í sund. Að því loknu fórum við í pizza veislu uppi á hóteli. Svo var bara chillað á hótelinu um kvöldið. Við vöknuðum klukkan sjö morguninn eftir og fórum beint í verkmenntaskólann þar sem við fengum kynningu frá nemendum og kennurum. Síðan fóru allir á þær brautir sem þau höfðu valið sér. Hægt var að velja um, háriðn, rafiðn, málmiðn og tréiðn. Síðan var farið aftur upp í brekku. Við þurftum því miður að bíða í klukkutíma eftir að það opnaði því það var verið að gera við einhverjar lyftur. Skyggnið var ekki alveg jafn gott og daginn áður en það var nú samt skíðað (brettað) mikið. Á leiðinni heim sprakk svo á kerrunni sem allt dótið var í og stoppað var í einn og hálfan tíma til þess að ákveða hvað ætti að gera og svo var ákveðið að setja allt dótið inn í rúturnar og keyrt heim.

Allir áttu mjög góða tvo daga og ekki slasaðist neinn mjög alvarlega en eitthvað var þó um meiðsli.

Sigrún Salka, Ingibjörg Lúcía og Ingunn Mist

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica