Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
5. M vikuhatid
5. M vikuhatid
Konný og Laufey
Mynd 1 af 20
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20

Hátíðardagskrá í boði 5. M

15.03.2012

Miðvikudaginn 14. mars var vikuhátíð hjá 5. M í Grunnskóla Hornafjarðar. Í boði var mjög metnaðarfull dagskrá sem var í höndum bekkjarins.

Frumflutt var leikritið Eigi fellur tré við fyrsta högg sem fjallaði um stelpuna Tótu sem lendir í erfiðleikum en málin leysast með hjálp álfsins Aþenu.

Höfundar handrits voru  stelpurnar í 5. M. Áheyrendur fengu að heyra brandara, sjá töfrabrögð og frumsamin dansverk. Í lokum kom bekkjarbandið Græna vespan fram opinberlega við mikinn fögnuð áhorfenda.

Það er ekki hægt að segja annað að skemmtunin hafi tekist vel og gestir sýningarinnar skemmt sér vel.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica