Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
arshatid 2012
arshatid 2012
Sindri, Vignir og Birgir vinna að skreytingunum fyrir árshátíðina
Mynd 2 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Bakað, skreytt, sungið og spilað

19.03.2012

Undirbúningur fyrir árshátíð skólans  er nú í fullum gangi.   Allir árgangar sem eru í heimilsfræði -smiðju er búnir að baka fyrir stóra daginn en boðið verður upp á kökur, kaffi og djús eins og áður.   2. og 4.bekkur sjá um að búa til skreytingar í samræmi við þemað sem að þessu sinni er hafið.      6. bekkur er að undirbúa sýningu á verkefni sem þau hafa verið að vinna að undanförnu en það heitir einnig Hafið og verður sýningin sett upp í íþróttahúsinu fyrir árshátíðina. 8. bekkur sér um veitingarnar á hátíðinni en aðrir bekkir sjá um skemmtiatriðin og er óhætt að segja að nóg sé að gera við æfingar. Eftir skóla á þriðjudag fáum við svo íþróttahúsið afhent og þá hefst vinna við að setja upp draperingarnar, sviðið og hljóðkerfið það er því í mörgu að snúast þessa dagana í grunnskólanum. 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica