Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
skolahr-veb7
skolahr-veb7
Mynd 1 af 8
1 2 3 4 5 6 7 8

Kepptu í skólahreysti á Egilsstöðum,

23.03.2012

Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar kepptu í skólahreysti á Egilsstöðum, 15. mars s.l. Þau sem kepptu fyrir skólann voru: Sigmar Þór Sævarsson, Alrún Irene Stephensdóttir, Birkir Þór Hauksson og Anna Soffía Ingólfsdóttir.

Varamenn í liðinu voru þau Auður Lóa Gunnarsdóttir og Agnar Jökull Imsland Arason. Keppnin var hörð en krakkarnir stóðu sig með miklun sóma. Lið Grunnskóla Hornafjarðar endaði að lokum í fjórða sæti, en 12 lið tóku þátt í okkar riðli. Undirbúningur fyrir skólahreysti hefst á haustdögum, nánar tiltekið þegar annað valtímabil skólans hefst.

Nemendum gefst þá kostur á að velja skólahreysti sem sinn valáfanga en endanlegt lið er síðan valið í febrúar og hefjast þá markvissar æfingar fyrir keppnina.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica