Stígvélakast, pönnukökubakstur og körfubolti
Á föstudaginn héldum við okkar árlega íþróttadag. Dagurinn fer þannig fram að öllum nemendum skólans er skipt upp í 17 hópa og núna eru nemendur að fara í þriðja sinn í sama hópinn sem við höfum kosið að kalla vinahóp.
Áður höfðum við unnið í þessum sömu hópum við að hanna draumskólann og búa til flugdreka.
Á íþróttadeginum er keppt í ýmsum greinum t.d. langstökki, spretthlaupi, stígvélakasti og drumbakasti. Það var einnig keppt í pönnukökubakstri, saumaskap, leiklist, lego, körfublolta, knattleikni og margt fleira var til gamans gert. Ekki spillti veðrið fyrir en það var logn allan tímann.



