Sáttmálasöngur 3. HS
Í Grunnskóla Hornafjarðar störfum við eftir uppeldisstefnunni „uppeldi til ábyrgðar“. Hluti af þeirri vinnu er að hver bekkur velur sér gildi eða kjörorð sem hann kýs að hafa að leiðarljósi yfir veturinn. Börnin vinna með kjörorðin á margvíslegan hátt og 3. HS valdi að syngja sín kjörorð. Bekkurinn setti kjörorðin í texta og valdi sér lagið Á íslensku má alltaf finna svar. Eftir þrotlausar æfingar var okkar góðkunna Jónína Einarsdóttir fengin til að leika undir og herlegheitn vor tekin upp og má sjá árangurinn á þessari slóð
http://www.youtube.com/watch?v=fCRroifPuWk&feature=youtu.be



