Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Berjaferd i Haukafell
Berjaferd i Haukafell
Berglind, Petra og Magndís
Mynd 1 af 10
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10

Berjaferð í Haukafell

30.08.2012

Í dag fóru nemendur 1.-4. bekkjar í Haukafell en það er hefð fyrir því að yngstu bekkir skólans fari í berjaferð að hausti. Óhætt er að segja að veðrið hafi leikið við nemendur og starfsfólk í ferðinni en það var stafalogn og sólskin allan tíman eins og hægt er að sjá á myndunum sem fylgja.  Í Haukafelli var hitað kakó, borðað nesti, tínd ber og farið í leiki. Nóg er af berjum þetta árið og voru börnin dugleg að tína berin og komu margir heim með slatta í dós til að færa fjölskyldunni.   HKG

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica