Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Göngum í skólann
Göngum í skólann
Nemendur skólans eru duglegir að hjóla og þá er gott að muna eftir hjálmunum.

Göngum í skólann

02.11.2012

Grunnskóli Hornafjarðar tók þátt í verkefninu göngum í skólann eins og undanfarinn ár. Verkefnið gengur út á að hvetja nemendur til að ganga eða hjóla í skólann ásamt því að þeir fengu heim með sér hreyfidagbók þar sem þeir skráðu hjá sér all hreyfingu í eina viku. Þetta er í þriðja skiptið sem nemendur fá heim með sér hreyfidagbók.  Ágætis skil voru á hreyfidagbókinni  en alltaf má gera betur. Það var 8. B sem var duglegastur í þetta sinnið en  15 nemendur af 17 skiluðu hreyfidagbókinni.  Glæsilegt hjá þeim.

Skólinn tók einnig þátt í norræna skólahlaupinu sem hlaupið er á hverju hausti á öllum Norðurlöndunum.  Krakkarnir okkar hlupu 707 km og fór hlaupið fram á hlaupabrautinni.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica