10.K. vann spurningakeppnina
Í Heppuskóla hefur nemendaráð skólans staðið fyrir spurningakeppni milli bekkja skólans. Spurningakeppnin hefur verið háð í löngufrímínútunum og hefur verið hart en heiðarlega barist. Það var síðan 10.K. sem stóð uppi sem sigurvegari og óskum við þeim til hamingju með árangurinn. Nemendafélagið á heiður skilinn fyrir að brydda upp á ýmsum viðburðum í frímínútum og vonandi verður framhald þar á. Eins eiga nemendur skólans skilið klapp á bakið fyrir að vera til fyrirmyndar, jafnt sem keppendur og áhorfendur. Það er nefnilega þannig að ef engin tekur þátt þá gerist ekki neitt!



