Vinadagur
Í gær var vinadagur í Grunnskóla Hornafjarðar. Á vinadegi hittast vinabekkir en það eru 1. og 6. bekkur, 2. og 7. bekkur, 3. og 8. bekkur, 4. og 9. bekkur og 5. og 10. bekkur. Að þessu sinni voru sáttmálar bekkjanna kynntir, spilað, byggt, farið í kvittanaleik og svo stimpluðu allir lófaförin sín á stór pappaspjöld sem verða hengd upp í matsalnum. Þessi dagur tókst afar vel og er starfsfólk skólans sammála um að nemendur skólans hafi staðið sig afar vel og þeir sem eldri eru hafi sinnt hlutverki sínu af ábyrgð.



