Í tilefni af 1. desember
Í tilefni af 1. desember sem er á morgun er sparifatadagur í skólanum. Nemendur og starfsfólk mættu í sínu fínasta pússi og svo hittust allir og sungu saman nokkur þjóðleg lög. En söngnum er þar með ekki lokið því núna kl 11:15 er samsöngur þjóðarinnar af tilefni þessa að í dag er dagur íslenskrar tónlistar. Við setjumst við útvarpstækin og syngjum saman þrjú lög.


