Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Ég les
Ég les
Bjartur Máni í 5. Á er að lesa bækur eftir Sigrúnu Eldjárn

Ég er að lesa.....

08.12.2012

Bjartur Máni í 5. Á er að lesa bækurnar Eyja Gullormssins, Eyja Glerfisksins og Eyja Sólfuglsins eftir Sigrúnu Eldjárn sem eru eins konar þríleikur. Bækurnar fjalla um unglingana Ými og Gunnu og börnin sem þau eru að passa í sumarfríinu. Sögurnar gerast í ævintýraheimi þar sem söguhetjurnar þurfa að berjast fyrir réttlæti og lenda í ýmsu í þeirri baráttu. Bjartur Máni segir að þessar bækur séu mjög skemmtilegar og bætir því við að nú er hann búinn að lesa Eyju Glerfisksins fimm sinnum og hinar oftar en einu sinni.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica