Litlu jólin
Litlu jólin voru haldin miðvikudaginn 18. des í Sindrabæ. Litlu jólin eru einskonar uppskeruhátíð á þeim verkefnum sem við höfum verið að vinna að á aðventunni í skólanum. En á aðventunni er lögð meiri áhersla en vanalega, á söng, tónlist, leiklist og föndur ýmisskonar svo eitthvað sé nefnt. á litlu jólunum sjá 2. 4. og 6 bekkur um atriðin auk 7. bekkjar og svo er dansað í kringum jólatréð en Kristín Jóhannesdóttir sér um undirleik og nemendur 6. bekkjar sjá um forsöng. Oftast er það svo að jólalögin óma hátt og berast um víðan völl þannig að karlar ofan úr fjöllum eiga það til að renna á hljóðið og skella sér í fjörið með okkur og vekur að alltaf mikla lukku.



