Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
2. bekkur
2. bekkur
2. S í umferðarfræðslu. Jón Garðar kom í heimsókn

Umferðafræðsla  í 2. S

25.01.2013

Nú erum við í 2. S búin að taka upp þráðinn þar sem frá var horfið í umferðarfræðslunni í haust. Lögreglan kom í heimsókn til okkar í vikunni og fór með okkur í göngutúr, rifjaði upp umferðarreglurnar og gaf börnunum endurskinsmerki. Að heimsókninni lokinni skrifuðu börnin litla sögu í ritunarbækur sínar. Hér má sjá eina söguna:

Lögregluheimsóknin. Í morgun kom löggan kát og hress til að kenna okkur umferðarreglurnar. Við fórum út að labba með lögregluþjóninum og hann kenndi okkur að stoppa, líta til beggja hliða og hlusta. Við fengum líka endurskinsmerki.

Kveðja, 2. S

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica