Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Oskudagur Nes feb 09 037
Oskudagur Nes feb 09 037
Marserað með tilþrifum !
Mynd 8 af 16
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16

Öskudagsfár í Nesjunum

25.02.2009

Nesjaskóla var öskudagurinn haldin hátíðlegur eins og vera ber. Við hófum daginn á hefðbundinni kennslu en eftir nestistímann tók við spila- og leikjatími fram að mat.

Það voru dregin fram öll spil skólans auk þess sem starfsfólkið kom með spil heiman frá sér. Krakkarnir skemmtu sér vel og margir fengu að kynnast spilum sem þeir höfðu ekki áður séð.

Eftir matinn sem reyndar var afmælismáltíð, en slík máltíð er höfð einu sinni í mánuði. Þá er sungið afmælissöngur fyrir afmælisbörn mánaðarins. Eftir mat hófst svo hið eiginlega öskudagsskrall. Opnað var á milli þriggja kennslustofa og þar inn var marserað undir dyggri stjórn Siggu og Brynju svo var dansað og hoppað um undir dynjandi tónlist og að lokum var kötturinn sleginn úr tunnunni sem er jú aðal atriðið. Það reynist samt ekki alltaf þrautalaust að berja á tunnunum en hefst samt alltaf á endanum.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica