Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
tjodleikur aefing vef
tjodleikur aefing vef
Æfing í Lopa í Þjóðleiksverkefni
Mynd 3 af 3
1 2 3

Leikhópurinn Lopi frumsýnir tvö ný leikrit

09.03.2009

 

Næstkomandi miðvikudag frumsýnir Leikhópurinn Lopi tvö ný leikrit. Þetta eru leikritin ÍSVÉLIN eftir Bjarna Jónsson og DÚKKULÍSA eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur.  Sýningar þessar eru hluti af verkefninu ÞjÓÐLEIK  sem  sett var á laggirnar sl. haust.

Þjóðleikur er tilraun  sem Þjóðleikhúsið stendur fyrir á öllu Austurlandi. Um er að ræða leiklistarhátíð ungs fólks á aldrinum 13 – 20 ára. Verkefnið er í samvinnu Þjóðleikhússins, Vaxtarsamnings Austurlands og Menningarmiðstöðvar Fljótdalshéraðs og margra fleiri aðila á Austurlandi.

Þrettán leikhópar af öllu Austurlandi taka þátt í verkefninu.  Skrifuð voru þrjú leikrit sérstaklega fyrir Þjóðleik. Munu hóparnir frumsýna leikritin í heimabyggð frá 6. mars til 19. apríl.  Auk Lopa er Leikhópur FAS að æfa þriðju sýninguna sem samin var og frumsýnir leikhópur FAS í lok mars. Það þýðir það að Hornfirðingar hafa kost á því að sjá öll verkin þrjú sem samin voru fyrir Þjóðleik.

Dagana 24. – 26. apríl munu allir hóparnir sameinast á Fljótsdalshéraði og halda mikla leiklistarhátíð þar sem allar sýningarnar 14 verða sýndar. Reikna má með því að mikill fjöldi unglinga sýni þá listræn tilþrif alla þessa helgi.

Leikhópurinn Lopi sýnir tvö þessara verka og eins og áður hefur komið fram þá frumsýnir hann miðvikudaginn 11. mars. kl. 20.00 í Mánagarði.  Síðan verða sýningar 12. mars og 16. mars. Leikstjóri beggja sýninganna er Magnús J. Magnússon

Í sýningum Lopa taka þátt 14 unglingar í þetta skiptið. Þetta er önnur og þriðja frumsýning Lopa á þessu skólaári en 30.nóv. sl. frumsýndi Leikhópurinn Lopi  Blekkinguna og gengu þær sýningar bara vel. Nú er unnið að litlu barnaleikriti sem frumsýnt verður í maí.

Viljum við hvetja alla unnendur leiklistar og alla þá sem vilja styðja við bakið á okkur að koma og kíkja við í Mánagarði og sjá þessar tvær leiksýningar.

Leikhópurinn Lopi

 

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica