Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Heimsokn fra Hellu 002
Heimsokn fra Hellu 002
Mynd 1 af 3
1 2 3

Heimsókn starfsfólks Grunnskólans á Hellu

04.06.2009

Í gær kom starfsfólks Grunnskólans á Hellu í heimsókn til að kynna sér hvað við værum að gera markvert í skólanum hér.  Auk þess að sýna þeim Heppuskóla þá sögðum við þeim frá nokkrum þáttum skólastarfsins, s.s. uppeldi til ábyrgðar, Need verkefninu sem skólinn er aðili að og legó- og nýsköpunarvinnunni. 

Það hefur tíðkast undanfarin ár að starfsfólk grunnskóla fari á nokkura ára fresti í skólaheimsóknir erlendis.  Vegna kreppunnar hefur dregið úr þessum heimsóknum en í staðinn heimsækir starfsfólk skóla nú skóla innanlands. 

Við erum að sjálfsögðu afskaplega ánægð að fá heimsóknir hingað til okkar þar sem við erum ekki í alfaraleið og sjaldgjæft að fá svona stóra hópa í einu. 

Í næstu viku eigum við von á heimsókn frá Grunnskólanum á Hvolsvelli.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica