Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
7.-K---reyklaus
7.-K---reyklaus
7. K reyklaus  http://reyklaus97.blogcentral.is/

Reyklaus skemmtun í Sindrabæ á laugardag kl. 16:00

Á vegum 7. K sem tekur þátt í keppninni Reyklaus bekkur 2010

22.04.2010

7.bekkur K er að taka þátt í keppni sem kallast Reyklaus bekkur 2010.  Keppnin felst á því að bekkurinn verður að vera reyklaus (að enginn reykir).  Svo fylgist kennarinn með og sendir staðfestingu að allir séu reyklausir í bekknum.  Ef einhver reykir í bekknum þá verður kennarinn að tilkynna það í keppnina og þá er sá bekkur úr keppninni.  En sem betur fer reykir enginn í okkar bekk og það er gott því við ætlum alltaf að reyna að halda öllum í bekknum reyklausum.

 

Okkur í 7.K datt í hug að halda reyklausa skemmtun því við erum með mikið að hressum krökkum sem eru fær í að syngja, leika og spila.  Þessi skemmtun er hluti af því sem við gerum í tengslum við verkefnið  Reyklaus bekkur.  Við munum spila lög, syngja og leika leikrit sem við bjuggum til fyrir þessa skemmtun.

Reyklausa skemmtunin verður haldin laugardaginn 24.4. kl. 16:00 í Sindrabæ og vonumst við til að sjá sem flesta koma.

VERUM REYKLAUS OG SKEMMTUM OKKUR VEL!!

Þeir sem reykja líður mikið verr fyrir vikið!

7.bekkur K

Á slóðinni http://reyklaus97.blogcentral.is/ má skoða vinnuna sem krakkarnir í 7. bekk hafa unnið í tengslum við Reyklaus bekkur.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica