Viltu vera vinur minn á Facebook
Í gærkvöldi frumsýndi leikhópur Grunnskólans leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook eftir Önnu Brynju Baldursdóttur í leikstjórn Kristínar Gestsdóttur. Leikritið er sýnt í Sindrabæ og er næsta sýning í kvöld þriðjudag kl. 20:00. Sýningin stendur í rúmar 30 mínútur og það kostar 500 kr inn á sýninguna.
Eins og nafnið bendir til þá fjallar verkið um Facebook notkun og hvernig hægt er að missa sjónar á því sem er mikilvægast í lífinu með því að vera alltaf á Facebook. Leikararnir sem eru úr 7. og 8. bekk skólans stóðu sig með stakri prýði. Þeir komu efni verksins vel til skila, textinn var almennt skýr og verkið bæði sorglegt og fyndið. Leikmyndin er einföld og dregur ekki athyglina frá boðskap verksins heldur styður við það sem leikararnir leggja áherslu á hverju sinni.
Leikritið Viltu vera vinur minn á Facebook er bráðskemmtilegt verk sem á erindi til okkar allra hvort sem við notum samskiptamiðla eins og Facebook eða ekki. Það getur verið kjörinn vettvangur til að koma af stað umræðu um tölvunotkun eða bara góð leið til að eiga skemmtilega stund í leikhúsi.



