Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
veb-uppldj6
veb-uppldj6
Mynd 7 af 7
1 2 3 4 5 6 7

Sigur í Stóru upplestrarkeppninni

30.03.2012

Stóra upplestrakeppnin var haldin á Djúpavogi, miðvikudaginn 28. mars. Þar kepptu nemendur í 7.bekk frá Djúpavogi, Hornafirði og úr Öræfum.

Grunnskóli Hornafjarðar hreppti tvö fyrstu sætin og er það glæsilegur árangur. Í fyrsta sæti var Agnes Jóhannsdóttir og í öðru sæti var Bjarney Anna Þórsdóttir. Þriðja sæti hlaut síðan Kristófer Dan Stefánsson frá Djúpavogi. Keppnin var hin glæsilegasta og öll umgjörð til fyrirmyndar. Vösk sveit nemenda í 7. bekk mætti til að styðja við bakið á sínum bekkjarfélögum og var það ánægður hópur sem steig upp í rútuna á Djúpavogi og hélt heim á leið. Þau sem kepptu fyrir hönd Grunnskóla Hornafjarðar voru: Agnes Jóhannsdóttir, Bjarney Anna Þórsdóttir, Ísabella Ævarsdóttir, Jóel Ingason, Arney Bragadóttir og Sunna Dögg Guðmundsdóttir. Gísli Þórarinn Hallsson og  Elín Ása Heiðarsdóttir höfðu einnig unnið sér rétt til að keppa en því miður gátu þau ekki tekið þátt í lokakeppninni.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica