9. bekkur á Laugum í Sælingsdal
Þessa vikuna dvelja krakkarnir í 9. bekk í ungmennabúðum UMFÍ að Laugum í Sælingsdal. Krakkarnir fóru vestur á sunnudaginn og tók ferðin 9 klukkustundir.
Krakkarnir eru flest vel sjóuð í löngum ferðalögum þannig að þau kipptu sér ekki upp við þennan bíltúr. Nemendur í Grunnskóla Hornafjarðar eru ekki ein á ferð á Laugum því þar eru líka nemendur frá Grundarfirði, Kópavogi og Akranesi. Ungmennabúðirnar eru skemmtileg og þroskandi upplifun og lifa lengi í minningu nemenda. Skólabúðunum líkur á föstudaginn og eru krakkarnir væntanlegir heim á föstudagskvöld.



