Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Svínaferð á Miðsker
2. bekkur í svínaferð
Ólafur, Guðný Olga og Líney Sif
Mynd 1 af 11
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11

Heimsókn að Miðskeri

11.05.2012

Miðvikudaginn 9.maí fór 2.bekkur að skoða svínabúið hjá Pálínu og Sævari á Miðskeri.  Þar sáum við fullt af svínum og grísum af hinum ýmsu stærðum og gerðum. 

Gyltan Gufa var nýbúin að gjóta 16 litlum og krúttlegum grísum og fengum við halda á nokkrum þeirra.  Við skoðuðum líka lömb, hana, hænur og hesta og hoppuðum og skoppuðum á heyrúllunum úti á túni.  Til að toppa þetta allt saman var, okkur til mikillar furðu, snjór í Nesjunum og því var líka hægt að dunda sér við að leika sér í snjónum og búa til risa snjóbolta.   Sem sagt frábær ferð í alla staði, takk fyrir okkur J

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica