Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Heppuskóli
Heppuskóli

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar

01.06.2012

Skólaslit Grunnskóla Hornafjarðar verða í Íþróttahúsinu á Höfn föstudaginn 1. júní kl. 16:00. Þetta verða fimmtu skólaslit skólans en hann tók formlega til starfa 2007 við sameiningu Nesja-, Hafnar- og Heppuskóla.

Í vetur stunduðu 286 nemendur nám við skólann í 15 bekkjardeildum. 26 nemendur eru að ljúka námi frá skólanum núna í vor en næsta haust lítur út fyrir að um 40 nemendur hefji nám í 1. bekk þannig að nemendafjöldinn næsta vetur verður um 300. 54 starfsmenn hafa starfað við skólann í vetur. Nokkur endurnýjun verður á starfsmannahópnum fyrir næsta vetur ekki síst vegna þess að fimm kennarar eru að fara í fæðingarorlof. Auk þess eru nokkrir að láta af störfum og verða þeir kvaddir við þetta tækifæri.

Á skólaslitum fá nemendur afhentar einkunnir sínar auk þess sem fulltrúar þeirra koma fram og syngja og spila. Foreldrar eru hvattir til að mæta á skólaslitin með börnum sínum og njóta samverunnar og kveðja vetrarstarfið.

Skólasetning verður 23. og 24. ágúst. Þá munu kennarar boða nemendur og foreldra í viðtöl. Kennsla hefst skv. stundatöflu 27. ágúst.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica