Hornsílin, The Glaciers kominn heim
Hornsílin eða The Glaciers eins og lególið Grunnskóla Hornafjarðar kallaði sig á erlendri grundu er nú komið heim úr mikilli ævintýraferð og allir sælir og glaðir.
Liðið tók þátt í opna First Lego league Evrópumótinu sem var haldið í Mannheim í Þýskalandi dagana 6. til 9. júní. Alls tóku 68 lið frá 35 löndum þátt í fjölbreyttri keppni og endaði liðið okkar í 30. sæti. Hópurinn vakti hvarvetna athygli og hélt merki Íslands og Hornafjarðar hátt á lofti. Allir gerðu sitt besta og komu heim reynslunni ríkari. Liðið þakkar öllum þeim sem studdu það og styrktu í ferðinni.
Legókveðjur
Hornsílin, The Glaciers


