Frelsi - Metnaður - Virðing - Jákvæðni - Vinátta
Danssyning 2012
Danssyning 2012
Allir að dansa í rafmagnsleysinu
Mynd 8 af 18
1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18

Dansað í rafmagnsleysi

02.11.2012

Í dag lauk dansviku í Grunnskóla Hornafjarðar. Nemendur hafa æft af kappi alla vikuna undir styrkri stjórn Jóns Péturs og  að venju líkur vikunni með danssýningu sem foreldrum er boðið á. Þegar sýningin hófst var  Íþróttahúsið fullt af nemendum og foreldrum sem biðu spenntir eftir að sjá og sýna. Framan af sýningu gekk allt eins og til stóð en um miðbik sýningarinnar gripu veðurguðirnir í taumana. Rafmagnið fór af og þá voru góð ráð dýr. Ekkert ljós og engin tónlist, ekki það besta þegar um danssýningu er að ræða. En Jón Pétur lét þetta ekki slá sig út af laginu og danssýningunni var haldið áfram með dyggri aðstoð foreldra og nemenda. Tónlistin var einfaldlega framkölluð með klappi og söng og varð úr þessu hin besta skemmtun og væntanlega gleyma nemendur þessari sýningu seint. Það sannaðist í íþróttasalnum í dag að allt er hægt ef viljinn er fyrir hendi.

Senda grein

 
Þetta vefsvæði byggir á Eplica