Jólapakkar til yngstu nemendanna
Anna Halldórsdóttir og Anna María Ríkharðsdóttir komu í heimsókn og færðu 1. bekkingum jólapakka frá Sparisjóðnum en það er siður sem sjóðurinn hefur haldið í mörg ár.
Það voru glaðir nemendur sem tóku við jólapökkunum og það var mikið spáð í hvað þetta gæti eiginlega verið en tilgátan sem mörgum fannst líklegust var að það væri sundskýla í pakkanum en hvort það er rétt kemur væntanlega í ljós á aðfangadagskvöld.


