Viðbragðsáætlun
Viðbragðsáætlun fyrir Grunnskóla Hornafjarðar í heild
Þessa viðbragðsáætlun skal nota í samráði við heilbrigðis- og menntayfirvöld ef til inflúensufaraldurs kemur. 
Helstu lykilatriði í viðbragsáæltun Grunnskóla Hornafjarðar
vegna hugsanlegs inflúensufaraldurs
1. Óvissustig.
Þegar nýr undirflokkur inflúensufaraldurs greinist í mönnum, en sýking milli manna er ekki þekkt nema í undantekningartilfellum, þá er viðbragðsáætlun samin. Starfsfólk, nemendur og foreldrar eru upplýstir um hlutverk sín og kynnt innihald viðbragðsáætlunarinnar.
2. Hættustig
- Þegar hópsýkingar af völdum nýs undirflokks inflúensuveirunnar brjótast út meðal manna á takmörkuðum svæðum.
- Vísbendingar um að veiran aðlagist mönnum í vaxandi mæli en ekki er talin bein hætta á heimsfaraldri.
- Engin staðfest tilfelli hér á landi.
Á þessu stigi er skólinn undirbúinn undir að hrinda viðbragðsáætlun í framkvæmd. Boðleiðir eru yfirfarnar og hlutverk og skyldur einstakra aðila skýrðar.
Kennarar gera klárar áætlanir um sjálfsnám á meðan og nýta þá almennar námsáætlanir sem grunn.
3. Neyðarstig a – fyrir lokun skóla
- Þegar stofn inflúensuveirunnar hefur fundist í einum eða fleiri einstaklingum hérlendist og heimsfaraldri hefur verið lýst yfir.
- Vaxandi og viðvarandi útbreiðsla smits meðal manna.
Á þessu stigi verða skólar að vera viðbúnir því að loka með litlum fyrirvara ef sýking breiðist frekar út í nánasta umhverfi. Ef sýkingar eru farnar að valda miklum fjarvistum hjá starfsfólki getur foreldrar átt von á því að nemendur séu sendir fyrr heim án þess þó að skóla sé lokað.
Foreldrum er bent á að auðvelt er að skrá veikindi barna í gegnum mentor.is ef mikið álag er á símkerfi skólans.
4. Neyðarstig b – lokun skóla (Samkomubann hefur verið fyrirskipað)
Skóla er ekki lokað nema í samráði við heilsugæsluna og bæjaryfirvöld. Komi til lokunar skóla er hún tilkynnt í gegnum tölvupóst og auglýsingar í skólanum, útvarpi, Skjávarpi og heimasíðu skólans http://www.rikivatnajokuls.is/grunnskoli/. Ef til úthringinga kemur þá hringja kennarar eða stjórnendur í efsta nafn í hverjum bekk sem hringja svo áfram koll af kolli.
5. Skólahald hefst á ný
Þegar heilbrigðisyfirvöld leyfa opnun skóla þá er byrjað á því að kalla starfsmenn saman í a.m.k. einn dag svo þeir geti undirbúið komu nemenda og gert nauðsynlegar ráðstafanir. Opnun skóla auglýst á sambærilegan hátt og lokun.
Á bls. 3-5 eru helstu atriði úr viðbragðsáætlun skólans en strax þar á eftir er viðbragðsáætlunin í heild.
6. Stjórnun og lykilstarfsmenn skólans
Skólastjórar í Grunnskóla Hornafjarðar eru Hulda Laxdal Hauksdóttir sem hefur daglega umsjón með 1. – 6. bekk sem staðsettur er í Hafnarskóla og Þórgunnur Torfadóttir sem hefur daglega umsjón með 7. – 10. bekk sem staðsettur er í Heppuskóla. Þær eru staðgenglar fyrir hvor aðra.
Aðrir lykilmenn skólans eru deildarstjóri sérkennslu, Þórhildur Kristjánsdóttir og ritarar sem sjá um tengsl við hina ýmsu starfshópa og eru um leið með daglega húsvörslu á sinni könnu. Ritarar eru Tova Flórentína Óskarsdóttir í Heppuskóla og Ingibjörg Ragnarsdóttir Hafnarskóla.
Ef miðla þarf upplýsingum í gegnum mentor þá geta umsjónarkennarar, ritarar eða skólastjórnendur gert það. Ef miðla þarf upplýsingum í gegnum vef skólans fer það í gegnum Þórgunni Torfadóttur, sé hún ekki viðlátin þá sjá Halldóra Guðmundsdóttir og Björn Sigfinnsson um að miðla upplýsingum á vefinn ásamt Sveinbirni Imsland hjá Hátíðni.
7. Starfssvæði skólans og umfang
Húsnæði: Grunnskóli Hornafjarðar starfar í tveimur aðskildum húsum en hefur einnig sérstakar starfsstöð fyrir textíl og smíðar og íþróttir og sund auk þess sem tvær lausar kennslustofur eru við Hafnarskóla.
Í Hafnarskóla eru 1. – 6. bekkur og er skólinn til húsa að Svalbarði 6 á Höfn. Í Hafnarskóla eru 159 nemendur. Auðvelt er að koma að húsinu á tveimur stöðum, annarsvegar frá Svalbarði en hinsvegar af Bogaslóðinni. Ef komið er að skólanum af Svalbarði þá er komið að aðaldyrunum og um leið og komið er inn úr andyrinu sést aðstaða ritara á hægri hönd. Í Hafnarskóla eru 10 kennslustofur á tveimur hæðum, auk matsalar, bókasafns og vinnuaðstöðu kennara, skrifstofum stjórnenda og sérkennslurýmum. Bak við skólann, við Bogaslóðina, eru tvær lausar kennslustofur þar sem myndmennt er kennd, tónmennt og þar er Kátakot einnig síðdegis. Kátakot er lengd viðvera fyrir 1.-4. bekk.
Í Heppuskóla er 7. – 10. bekkur og er hann til húsa að Víkurbraut við hliðina á íþróttahúsi Hafnar og sundlaug. Í Heppuskóla eru 127 nemendur. Í Heppuskóla er einnig kennsluhúsnæði fyrir heimilisfræði í öllum árgöngum. Innangengt er milli skólans og íþróttahúss en um 20 metrar eru yfir í sundlaugina. Komið er inn í Heppuskóla af Víkurbraut og þegar inn er komið er stórt rými til afnota fyrir nemendur í frímínútum en þar beint innaf er skrifstofa skólans og vinnuaðstaða kennara. Á neðri hæðinni eru einnig þrjár kennslustofur en hinar eru á efri hæðinni.
Handmenntahús: Í gamla KASK húsinu við Hafnarbraut eru textíl og smíðakennsla og gengur þetta kennslusvæði undir nafninu handmenntahús. Gengið er inn í handmenntahúsið af Svalbarði 1. Þar eru venjulega tveir kennarar að kenna með 10 – 14 nemendur hvor. Þegar komið er inn í handmenntahúsið er fyrst komið inn í forstofu, þá gang þar sem textílstofan er á vinstri hönd en beint áfram er aðstaðan undir smíðakennsluna.
Heildar starfsmannafjöldi við skólann er 57 starfsmenn. 35 kennarar, 3 stjórnendur og 19 almennir starfsmenn.
8. Viðbragðsáætlun –Grunnskóla Hornafjarðar við heimsfaraldri inflúensu
Skólastjórnendur annast uppfærslu og virkjun viðbragðsáætlunar í nánu samráði við skólahjúkrunarfræðing og framkvæmdastjóra félags- og fræðslusviðs.
Viðbraðgsáætlun er kynnt bæði fyrir nemendum og foreldrum í tölvupósti og á fundum. Lögð áhersla á að fræða nemendur, starfsmenn og foreldra um útbreiðsluleiðir og hvernig draga má úr smiti með því að dreifa ýmiskonar upplýsingabæklingum sem dreift er frá landlæknisembætti og fleirum, sjá slóðir hér að neðan.
Grunnupplýsingar má fá í bæklingi sem er að finna á http://www.almannavarnir.is/ og heitir ,,Munum eftir inflúensunni“ svo og á http://www.influensa.is/. Þar má einnig finna fleiri ganglegar upplýsingar auk þess sem þetta er helsta upplýsingaveitan um framgang mála.
Hvernig á að bregðast við veikindatilfellum nemenda í skólanum?
Ef barn veikist á skólatíma þá er haft samband heim og foreldrar beðnir um að sækja það. Foreldrar leita sér ráðgjafar á heilsugæslustöð ef veikindi verða alvarlega. Einnig er þeim bent á heimasíðu Landlæknisembættisins www.landlaeknir.is/ eða http://www.influensa.is/ .
Foreldrar eru hvattir til að nýta sér skráningarkerfi mentors ef um mikil veikindi nemenda er að ræða og mikið álag á skrifstofu skólans. Leiðbeiningar um hvernig það er notað er sent heim með tölvupósti á öll heimili.
Hvernig er skipulagning afleysingakerfis lykilstarfsmanna (skólastjórnenda) ef til veikinda hjá þeim kemur?
Ef skólastjórnandi veikist þá tekur hinn skólastjórnandinn við ásamt ákveðnum lykilstarfsmanni í hvoru húsi fyrir sig. Veikist báðir þessir stjórnendur þá taka báðir lykilstarfsmennirnir við og njóta aðstoðar ritara. Veikist annar lykilstarfsmannanna þá er kallað eftir stuðningi frá yfirmanni fræðslu – og félagssvið ef skólahald gengur ekki snurðulaust fyrir sig. Ef mikil veikindi eru hjá starfsmönnum verða sendar heim tilkynningar til foreldra um að kennsla falli niður í einstaka bekkjardeildum. Lögð verður áhersla á að halda uppi kennslu í yngstu fjórum bekkjunum en hafa frekar eldri nemendur heima því þeir geta hugsað um sig sjálfir og margir hverjir lært sjálfstætt eftir námsáætlunum.
|
|||||
|
|||||
|
|||||
|
|||||
|
|||||
Komi til lokunar skóla
Komi til lokunar skóla þá verður það tilkynnt með tölvupósti til allra heimila, auglýst á Skjávarpi og í útvarpi. Auglýsingar verða einnig settar upp við allar inngönguleiðir í skóla.
Auglýsingin verður svona „Vegna...... hefur skólanum verið lokað um óákveðinn tíma. Opnun hans verður auglýst í mentor, útvarpi og á Skjávarpi.“
Hvaða boðleiðir til og frá skóla haldast opnar þannig að nauðsynlegt upplýsingastreymi haldist gangandi?
Skólastjórnendur og aðrir lykilstarfsmenn munu tryggja það að boðleiðir verði opnar í gegnum heimasíðu skólans, tölvupóst og auglýsingar. Verði kennarar starfhæfir munu þeir geta liðsinnt nemendum í gegnum tölvupóst, mentor og heimasíðu skólans. Foreldrum og nemendum er sérstaklega bent á námsáætlanir sem eru á heimasíðu skólans. Komi til úthringinga munu umsjónarkennara og eða ritarar sjá til þess að hringt verði í heimili allra nemenda eftir starfrófsröð. Starfsmaður hringir í þann sem er efstur á listanum og hann hringir síðan í þann næsta og svo koll af kolli.
Hvernig verður tryggð umsýsla fasteigna og öryggismála meðan á lokun stendur?
Ritarar sem einnig eru með húsvörslu sjá um að nauðsynleg umsýsla skólahúsnæðis sé í lagi og njóta til þess aðstoðar húsvarðar og skólastjórnenda.
Hvernig verður staðið að skipulagningu skólastarfs eftir opnun?
Þegar kemur að því að hefja skólastarf að nýju verða starfsmenn fyrst boðaðir til vinnu í einn dag þar sem þeir endurskipuleggja námsáætlanir sínar í samræmi við það hversu lengi skólinn hefur verið lokaður og skólastarfið verður skipulagt í samræmi við yfirstaðna atburði.


