Sérfræðiþjónusta Grunnskóla
Sálfræðingur
Sálfræðingur starfar við skólann, deildarstjóri stigs tekur við tilvísunum til hans, undirbýr athugun og heldur utan um málið meðan þjónustan stendur yfir. Sálfræðingur sinnir fyrst og fremst greiningum og ráðgjöf í tengslum við þær. Foreldrar og starfsfólk skóla geta einnig óskað eftir viðtölum vegna nemenda. Sálfræðingurinn er á Höfn þrjá daga í mánuði og viðtölin fara ýmist fram í Hafnarskóla eða á heilsugæslustöð.
Tilvísun til sálfræðings - umsóknareyðublað
Talmeinafræðingur
Talmeinafræðingur starfar við skólann, deildarstjóri stigs tekur við tilvísunum til hans, undirbýr athugun og heldur utan um málið meðan þjónustan stendur yfir. Oftast hafa samskipti foreldra, nemenda og talmeinafræðings hafist á leikskólastigi og er henni fram haldið í grunnskólanum ef þurfa þykir. Talmeinafræðingurinn er á Höfn 3-4 sinnum á ári í 2-3 daga í senn, viðtölin fara fram á heilsugæslustöð.
Bakgrunnsupplýsingar vegna tíma hjá talmeinafræðingi - umsóknareyðublað
Lestrargreiningar
Í grunnskólanum er matskerfið Leið til læsis notað til að fylgjast með framförum í lestri, hjá öllum nemendum á yngsta stigi. Kerfið finnur hugsanleg frávik og hægt er að bregðast við þeim með einstaklingsmiðaðri íhlutun. Hjá eldri nemendum með lestrarerfiðleika eru gerðar lestrargreiningar til að staðsetja nákvæmlega hvar erfiðleikar þeirra liggja og gera íhlutun markvissari. Umsóknir um lestrargreiningu eru gerðar í samvinnu foreldra og umsjónarkennara, deildarstjóri stoðþjónustu tekur við umsóknum og leggur greiningu fyrir nemandann. Niðurstöðum er skilað til foreldra og umsjónarkennara.
Umsókn um lestrargreiningu - umsóknareyðublað
Bakgrunnsupplýsingar vegna lestrargreiningar - umsóknareyðublað


