Nemendur Hafnarskóla eru þátttakendur í evrópuverkefninu “School for the future” og nú hafa nemendurnir, foreldrar þeirra og kennarar skrifað inn á heimasíðu verkefnisins þar sem þau skrifa um jólin og lestur. Eitt af því sem krakkarnir hafa skrifað um eru jólasveinarnir okkar og þar sem þetta er evrópuverkefni er allt skrifað á ensku og þá heita sveinarnir okkar þrettán: Sheep worrier, Gully gawk, Stubby, Spoon licker, Pot licker, Bowl licker, Door slammer, Skyr glutton, Sausage stealer, Window peeper, Door sniffer, Meat hook og Candle beggar.
Lesa meira