Fundahöld í skólum
Í byrjun skólaárs er mikið af upplýsingum sem koma þarf til foreldra skólabarna um vetrarstarfið. Í síðustu viku voru haldnir kynningarfundir í Nesjaskóla þar sem farið var yfir kennsluáætlun vetrarins, námsgögn nemenda og fyrirspurnum svarað. Í gær var samskonar kynning í Heppuskóla. Þar var m.a. rætt um samræmduprófin sem nemendur 10. bekkjar koma til með að þreyta í vor, próf sem skipta miklu máli vegna áframhaldandi skólagöngu. Hafnarskóli var einnig með fund í gær fyrir foreldra nema í 4.- 5. bekk.
Í dag er síðan lokaspretturinn en þá mæta foreldrar barna í 6. ? 7. bekk Hafnarskóla. Eftir þann fund ættu foreldrar grunnskólanema á Hornafirði að vera orðnir vel upplýstir um skólastarf vetrarins.