Evrópuverkefnið í fullum gangi
Nemendur Hafnarskóla eru þátttakendur í evrópuverkefninu ?School for the future? og nú hafa nemendurnir, foreldrar þeirra og kennarar skrifað inn á heimasíðu verkefnisins þar sem þau skrifa um jólin og lestur. Eitt af því sem krakkarnir hafa skrifað um eru jólasveinarnir okkar og þar sem þetta er evrópuverkefni er allt skrifað á ensku og þá heita sveinarnir okkar þrettán: Sheep worrier, Gully gawk, Stubby, Spoon licker, Pot licker, Bowl licker, Door slammer, Skyr glutton, Sausage stealer, Window peeper, Door sniffer, Meat hook og Candle beggar.
Skóladagatal Hrollaugsstaðir 2005
Evrópuverkefnið er gott innlegg í skólastarfið og veitir nemendum skemmtilegt tækifæri til að kynnast lífi nemenda í öðrum löndum. Hægt er að lesa meira af skrifum Hornfirðinganna með því að fara inn á vef Evrópuverkefnisins.