Sveitarfélagið Hornafjörður - Hafnarskóli fréttir
    <description>Sveitarfélagið Hornafjörður</description>
    <ttl>40</ttl>
Danskennsla
      <description>Danskennslan hjá Jóni Pétri endaði í dag með danssýningu fyrir foreldra 4. bekkjar. Krakkarnir hafa verið afar duglega að dansa og skemmt sér konunglega. Jón Pétur sagðist geta gefið þeim hæstu einkun fyrir vikuna. Dansvika sem þessi verður vonandi árlegur viðburður hjá okkur og á næsta ári stefnum við að því að bæði 4. og 5. bekkur dansi. 
|nl|</description>
Evrópuverkefnið í fullum gangi
      <description>Nemendur Hafnarskóla eru þátttakendur í evrópuverkefninu “School for the future” og nú hafa nemendurnir, foreldrar þeirra og kennarar skrifað inn á heimasíðu verkefnisins þar sem þau skrifa um jólin og lestur. Eitt af því sem krakkarnir hafa skrifað um eru jólasveinarnir okkar og þar sem þetta er evrópuverkefni er allt skrifað á ensku og þá heita sveinarnir okkar þrettán: Sheep worrier, Gully gawk, Stubby, Spoon licker, Pot licker, Bowl licker, Door slammer, Skyr glutton, Sausage stealer, Window peeper, Door sniffer, Meat hook og Candle beggar.</description>
Friðarloginn frá Betlehem
      <description>Í gær komu skátar með friðarlogann frá Betlehem í Hafnarskóla. Þar gáfu þeir nemendum afleggjara af loganum sem logað hefur óslitið frá því um 300 e. K. er hann var kveiktur í Betlehem. Á miðvikudagskvöldið gáfu þeir einnig afleggjara af loganum á tónleikum unga fólksins í Nýheimum. Friðarloginn frá  Betlehem er: Gjöf Ljós sjálfstæðis Ljós samhyggju Ljós friðar og vináttu Ljós þeirra sem hjálpa Ljós fyrir þjáða og einmana Ljós skilnings á þörfum hvers annars Notaðu það þar sem þú vilt kveikja ljós öðrum til gleði!</description>
Jólasöngur á sal
      <description>Nemendur Hafnarskóla hittust á sal í hádeginu í dag og sungu saman jólalög. Gaman var að heyra krakkana syngja hvert jólalagið á fætur öðru af mikilli innlifun og oft með miklum raddstyrk. Þetta er í annað skiptið sem krakkarnir stilla saman jólastrengina í söng því s.l föstudag voru jólalögin sungin og er stefnt að því að hittast nokkrum sinnum í viðbót á sal fram að jólum og syngja jólalög, enda fátt betra til að komast í jólaskapið en fallegur söngur.</description>
Blöðrur á loft
      <description>Samevrópsk Comeniusarvika er haldin dagana 10. – 14. nóvember. Af því tilefni voru nokkrir skólar vítt og breytt um Evrópu valdir til að sleppa blöðrum, í því skyni að vekja athygli á því starfi sem unnið er í mörgum skólum. Hafnarskóli er einn af þessum skólum og slepptu krakkarnir á annað hundrað blöðrum á loft kl. 13:10 í dag. Mikill fjöldi var á hólnum við Hafnarskóla og góð stemming og fjör hjá krökkum sem kennurum. Á sama tíma slepptu hinir skólarnir sem valdir voru í Evrópu sínum blöðrum á loft.</description>
Mikið um að vera í Hafnarskóla
      <description>Í dag fimmtudag og á morgun föstudag verða öðruvísi dagar í Hafnarskóla. Yfirskrift daganna er “Vinátta og virðing”. Á vinadögum verður unnið með ábyrgð nemendanna sjálfra á því sem þeir taka sér fyrir hendur. Nemendur munu taka þátt í hópavinnu og er boðið upp á 16 mismunandi hópa. Í hádeginu í dag er síðan afrakstur morgunsins til sýnis fyrir foreldra og aðstandendur. Starfræktur verður lítill matsölustaður í hádeginu þar sem hægt verður að fá súpu og brauð á vægu verði. Milli kl. 13 og 14 í dag eru eldri borgarar boðnir sérstaklega velkomnir í skólann.</description>
Fundahöld í skólum
      <description>Í byrjun skólaárs er mikið af upplýsingum sem koma þarf til foreldra skólabarna um vetrarstarfið. Í síðustu viku voru haldnir kynningarfundir í Nesjaskóla þar sem farið var yfir kennsluáætlun vetrarins, námsgögn nemenda og fyrirspurnum svarað. Í gær var samskonar kynning í Heppuskóla. Þar var m.a. rætt um samræmduprófin sem nemendur 10. bekkjar koma til með að þreyta í vor, próf sem skipta miklu máli vegna áframhaldandi skólagöngu. Hafnarskóli var einnig með fund í gær fyrir foreldra nema í 4.- 5. bekk.</description>
Fimm úr Hafnarskóla - Nýsköpunarkeppni grunnskóla
      <description>Nú dregur til úrslita í Nýsköpunarkeppni Grunnskólanemenda 2003. Inn komu um 2000 hugmyndir. 52 hugmyndir komust áfram eftir yfirferð matsnefndar og er hugmyndasmiðum þessara hugmynda boðið í vinnusmiðjur. Í vinnusmiðjunum vinna þeir áfram með hugmyndir sínar, gera plaköt, sem sett verða á sýningu, líkön og e.t.v. frumgerðir. Verðlaunanefnd fer síðan yfir hugmyndirnar og fer verðlaunaafhending fram þann 5. október í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli v/Vídalínskirkju, Garðabæ kl. 14.00. 9 hugmyndir fá verðlaun og mun Forseti Íslands afhenda verðlaunin.</description>
Lengd viðvera fyrir yngstu nemendurna
      <description>Á komandi skólaári mun verða boðið upp á lengda viðveru hjá börnum í 1. - 4. bekk grunnskólanna á Hornafirði. Sveitarfélagið ákvað að bjóða upp á þessa auknu þjónustu til að koma á móts við óskir foreldra. Fyrsta skóladaginn koma börnin í fylgd foreldra en síðan mun börnum úr Nesjaskóla verða ekið með skólarútunni í Hafnarskóla.</description>
Í skólanum, í skólanum er skemmtilegt að vera
      <description>Hafnarskóli verður settur mánudaginn 25. ágúst og hefst kennsla þriðjudaginn 26. ágúst. Arnbjörg Stefánsdóttir skólastjóri sagði að nemendur yrðu 163 sem er 7 nemendum færra en á seinasta skólaári og hafa nemendur ekki verið færri frá því grunnskólinn á Hornafirði var þrískiptur. Búið er að ganga frá ráðningu starfsfólks og verða kennarar 17 talsins að meðtöldum stjórnendum, þar af eru sjö leiðbeinendur en fjórir þeirra eru í kennaranámi.</description>